Annríki í leik og námi

07.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er mikið að gera hjá 10. bekk og svo mikið um að vera að það hefst ekki undan að segja frá öllu. Fjáröflunin er stórverkefni og fer ekki framhjá foreldrum, enda stendur nú fyrir dyrum kleinubakstur á laugardaginn þar sem verða steikt yfir 100 kg. af kleinum. Á föstudaginn verður haldið svokallað Halloween-ball og er í mörg horn að líta við undirbúninginn, það þarf að útvega DJ, skreyta salinn, kaupa inn fyrir sjoppuna, fá foreldra og kennara á gæslu og redda þessu og bjarga hinu. Krakkarnir standa sig vel í þessu öllu saman en mæting á fjáröflunarfundina mætti vera betri. Í næstu viku er foreldradagur og þá verður 10. bekkur með vöfflusölu til ágóða fyrir ferðasjóðinn. 


 


Í íslensku erum við að ljúka við Engla alheimsins, búin að lesa bókina og erum að horfa á bíómyndina. Þá er aðeins eitt verkefni eftir úr Englunum áður en við snúum okkur að næstu viðfangsefnum.


Í ensku vorum við að klára fyrsta kaflann í bókinni og var próf úr honum í dag, í hlustun og orðaforða. Í stærðfræði er verið að vinna stórt þrívíddarverkefni þessa dagana.


Á morgun, föstudaginn 8. nóv. er dagur eineltis. Þá ætlar Inga Bára, námsráðgjafi skólans að koma og ræða við nemendur á unglingastigi um það hvimleiða fyrirbæri einelti. Við eigum einnig von á fólki frá HIV-Ísland til að ræða við nemendur um alnæmi.


Af þessu má ljóst vera að annríkið er mikið hjá 10. bekk og í mörgu að snúast.