Annríki í 9. bekk
15.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er nóg að gera eins og venjulega í 9. bekk og tíminn flýgur áfram. Nú er allt á fullu að undirbúa árshátíðina sem verður 22. og 23. mars, síðustu tvo dagana fyrir páskafrí. Nemendur 9. bekkjar verða með frumsamið leikrit sem heitir Leitin að fjársjóði tröllsins. Æfingarnar ganga vel og stefnir í skemmtilega sýningu hjá þeim.
Þau eru að ljúka skemmtilegu dönskuverkefni þessa dagana, þar sem þemað er matur. Því lýkur með því að nemendur setja upp stutt leikrit á dönsku, sem fram fer á veitingahúsi. Kennararnir þeirra hafa hrósað þeim mikið fyrir hversu vel þau standa sig í þessu, þau vanda sig og leggja sig fram og það er alltaf gaman að sjá.








