Annasöm vika
12.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mikið hefur verið um að vera hjá okkur í 2. bekk í vikunni. Á fimmtudag var náttfatadagur hjá okkur og þá mátti koma með dót að heiman.Dagbjört Ásgeirsdóttir kom og las bók sína Gummi fer í fjallgöngu. Eftir matinn var bekkjarskemmtun og horfðum við á myndina Þegar Trölli stal jólunum, borðuðum, snakk og smá nammi. Einnig var frjáls leikur og skemmtu allir sér konunglega.
Á föstudag var samvera með vinabekknum okkar, 9. bekk og buðu þeir okkur upp á piparkökur og hjálpuðu okkur að föndra jólaálfa.








