Annasöm vika

05.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það var mikið um að vera hjá okkur þessa vikuna.  Á mánudaginn héldum við litla stærðfræðileika.  Við vorum að vinna með mælingar og skiptum krökkunum í litla hópa sem fóru á milli verkefna.  Verkefnin voru að búa til skutlu, kasta henni og mæla hænuskrefin að henni, að blása bréfkúlu og mæla hvað hún fór marga blýanta áfram, mæla lengdir með bréfaklemmum, mæla lengdir með sentikubbum.  Við höldum svo áfram með mælingar í næstu viku en þá ætlum við út í stígvélakast og fleira.  Vonandi verður myndavélin með í för þá fyrst hún gleymdist á mánudaginn.


Í dag fórum við með öllum skólanum í skrúðgöngu upp að Eyrarskjóli og svo niður á Silfurtorg.  Þar tókum við hreyfilagið Höfuð, herðar, hné og tær.  Að því loknu leiddumst við öll inn á skólalóð og fórum svo í frímínútur.