Annasamir dagar
10.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er annríki vorsins hafið. Vikan framundan er síðasta heila vikan sem við höfum til bóknáms í vetur.
Tveir dagar seint í maí verða svokallaðir prófdagar þar sem nemendur koma í skólann, taka próf og fara heim að því loknu. Önnur próf fara inn í stundatöflu dagsins. Síðustu skóladagarnir fara í útivist og ferðialög. Undanfarin ár hefur 5. bekkur farið í fræðsluferð í Náttúrustofu í Bolungarvík og aðra í rafstöðina í Engidal. Við munum halda uppteknum hætti og heimsækjum þessa staði.








