Annarlok og námsmat

09.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Haustönn lýkur föstudaginn 17. janúar með viðeigandi námsmati. Prófað verður í íslensku og ensku, en önnur próf verða ekki lögð fyrir. Vinnubók í náttúrufræði verður metin til einkunnar ásamt prófum sem tekin voru fyrr á önninni. Í samfélagsfræðinni verður vinnubók metin ásamt ritgerð sem gerð var. Þá hafa nemendur tekið 3 kannanir í stærðfræðinni sem metnar verða til einkunnar.