Ályktun vegna skólalóðar
04.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á aðalfundi Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði haustið 2013 var eftirfarandi ályktun vegna skólalóðarmála samþykkt:
Tryggjum börnunum okkar góða skólalóð
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði, haldinn í sal skólans miðvikudaginn 2. október 2013, leggur þunga áherslu á að við endanlega útfærslu á lóð skólans verði hagsmunir og þarfir nemenda hafðir í forgangi. Sú ákvörðun að loka Austurvegi og nýta hann sem skólalóð virðist ætla að gefa góða raun auk þess sem hugmyndir á suður- og austurhluta lóðarinnar eru áhugaverðar. Út af stendur að skilgreina betur lóðamörk við Aðalstræti. Ef nauðsynlegt er talið að nýta Aðalstræti áfram fyrir gegnum akstur telur fundurinn brýnt að sá hluti götunnar, sem liggur frá Norðurvegi og meðfram aðalinngangi á nýbyggingu skólans, verði áfram skilgreindur sem skólalóð og lokaður af með hliði á skólatíma. Öll skerðing umfram þá skilgreiningu er ekki ásættanleg enda telst lóðin nú þegar of lítil, miðað við viðtekna staðla um skólalóðir, þrátt fyrir þá viðbót sem Austurvegurinn er.
Við Grunnskólann á Ísafirði starfa ríflega 350 börn ásamt kennurum og öðru starfsfólki. Öryggi og þarfir þessa stóra hóps þarf að tryggja í hvívetna og verður það m.a. gert með því að gera skólalóðina sem best úr garði fyrir börnin okkar. Foreldrafélag GÍ hefur um langt skeið þrýst á um framkvæmdir við skólalóðina. Fyrstu skref lofa góðu og hvetur aðalfundurinn til þess að málið verði sem fyrst til lykta leitt svo halda megi af krafti áfram þeirri uppbyggingu sem þegar er hafin.








