Alþjóðlegi netöryggisdagurinn

05.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er haldinn hátíðlegur í tíunda sinn í dag. Þemað í ár er  Réttindi og ábyrgð á netinu  og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.


Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda samstarfsnetið  Insafe   og yfir 40 önnur lönd munu leiða saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið frá ýmsum hliðum. Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta  auglýsingu  til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á  netinu  og sýnd í sjónvarpi næstu daga.