Áhugaverðar greinar um læsi, skólabækur og börnin okkar

01.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Laugardaginn 21. janúar 2012 var haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS - Bókaþjóð í ólestri.  Þar var fjallað um niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.  Í kjölfar ráðstefnunnar hafa birst í fjölmiðlum vangaveltur tveggja rithöfunda um skólabækur í þessu samhengi.  Annars vegar er þar um að ræða viðtal við Andra Snæ Magnason: Þögnin um mest lesnu bækurnar og hins vegar grein eftir Jón Kalman Stefánsson: Um lestur, leti okkar og hugmyndasnauðar skólabækur.   Áhugaverð lesning þarna á ferð.