Afhending á iPödum
12.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá eru spjaldtölvurnar tilbúnar til afhendingar. Búið er að útbúa samning, sem nemandi og foreldri/forráðamaður þarf að lesa og undirrita áður en iPadinn er afhentur. Útbúin hafa verið netföng (gmail) og lykilorð sem fylgja með á miða ofan í umbúðunum. Nemendur stofna sjálfir gmailið, helst viljum við að það verði gert áður en haldið er heim með iPadinn. Ef svo ólíklega vill til að lénið sé frátekið þarf að ræða við kennara um breytingu, þar sem bæði netföng og lykilorð verða að vera til á skrá hér í skólanum. Ekki verður um formlegan haustfund að ræða hjá okkur að þessu sinni látum það duga að hitta ykkur við þessa afhendingu þannig að ef einhverjar spurningar eru þá endilega gefið ykkur tíma til að spjalla við okkur. Köllum frekar til fundar þegar líða tekur á, ef þurfa þykir og reynsla verðu komin á þessa nýju viðbót í kennslunni hjá okkur.
Við ætlum að vera hérna í skólanum á mánudag frá kl. 13:30 til 17:00, þriðjudag frá kl. 12:00 – 14:30, og miðvikudag 13:00 – 17:00. Þið mætið á þeim tíma sem ykkur og ykkar barni hentar. Ef þið getið ekki nýtt ykkur þessa tíma þá hafið samband og við finnum okkur tíma.
Bendum sérstaklega á að nemandi fær iPadinn ekki afhentan nema að viðstöddu foreldri/forráðamanni.
Spennandi tímar framundan hjá okkur, allir fullir tilhlökkunar.
Kv. Kristín og Harpa.








