Ævintýraferð til Suðureyrar

23.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Heimsókn 1. bekkjar GÍ til Suðureyrar.


Síðastliðin sex ár hafa fyrirtækin Íslandssaga og Klofningur boðið öllum nemendum í 1. bekk GÍ í heimsókn til Suðureyrar til að skoða fiskvinnsluna þeirra.  Þetta er mjög rausnarlegt boð þar sem rúta kemur og sækir krakkana heim í skóla og skilar þeim þangað aftur í lok heimsóknar.  Að þessu sinni lögðum við land undir fót í morgun og ókum með Sófusi rútubílstjóra gegnum göngin til Suðureyrar.  Þegar þangað kom hófst ævintýrið.  Óðinn, Guðni, Oddný  og Ævar tóku á móti okkur og sýndu okkur starfsemi sína. Við heimsóttum fólkið í beitningaskúrunum og sáum hvernig það vinnur, síðan gengum við gegnum fiskvinnsluna hjá Íslandssögu og fengum að sjá allt vinnsluferlið.  Rúsínan í pylsuendanum þar var að allir fengu að setjast upp í lyftara og prófa að lyfta gaflinum á alla vegu og vakti það mikla lukku hjá börnunum.  Við sáum hvar fisknum var pakkað í ýmsar umbúðir.  Bæði er fiskur fluttur ferskur  til útlanda  í kælikössum, á meðan annar fiskur er frystur og sendur þannig út í heim.  Krökkunum fannst nú heldur kalt inni í frystiklefanum.  Við sáum líka að fullt af fiski varð eftir á hausunum og beinunum. Hvað verður nú eiginlega um það?  Fer það ekki bara beint í ruslið?  Nei þeir á Suðureyri eru umhverfisvænir og nýta næstum því allt sem fellur til af fiskunum og breyta því í verðmæti.  Þessir afgangar eru nefnilega settir í þurrk og seldir  til Nigeríu.     Við fengum að sjá og „lykta“ af þurrkuðum fiskhausum og beinum í Klofningi og fræddumst um allt ferlið.  Ekki var laust við að sumum þætti lyktin  í Klofningi slæm en það eru hraustir krakkar í 1. bekk og þeir létu smá  lykt ekki stoppa sig heldur skoðuðu  allt sem í boði var.   Í lok ferðarinnar var okkur boðið til Elíasar í kaffihúsinu Kaupfélaginu og þar fengu allir ís.  Einnig leystu gestgjafarnir okkur út með góðum gjöfum, allir fengu ferskan fisk í soðið, harðfisk og reyktan rauðmaga.  Það voru glaðir og ánægðir krakkar og kennarar sem héldu heim á leið í lok heimsóknarinnar.  Takk kærlega fyrir okkur Súgfirðingar. Þið eru höfðingjar heim að sækja.