Aðalfundur Foreldrafélags GÍ og spennandi fyrirlestur Margrétar Pálu 2. október kl. 20:00

25.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði verður haldinn í sal skólans þriðjudaginn 2. október kl. 20:00.  Hefðbundin aðalfundarstörf.  Núverandi stjórn gefur öll kost á sér áfram.  Að loknum aðalfundi mun Magréta Pála halda erindi um börn og skóla.  Margrét Pála er upphafskona Hjallastefnunnar á Íslandi og stýrir núna Tálknafjarðarskóla á Tálknafirði.  Hún var reglulegur gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í fyrra vetur og fjallaði þar um börn og skóla í víðu samhengi og mun fyrirlesturinn vera í þeim anda.  Foreldrar og forráðamenn grunnskólabarna á Ísafirði eru hvattir til að koma og eiga saman góða kvöldstund.