Aðalfundur Foreldrafélags GÍ haustið 2012
02.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Aðalfundur Foreldrafélags GÍ haldinn 2. október 2012 kl. 20:00 í sal Grunnskólans á Ísafirði
Mættir: 20 foreldrar með stjórn
Fundarstjóri: Gísli Úlfarsson
1. Skýrsla stjórnar
Formaður, Thelma Hjaltadóttir, flutti skýrslu stjórnar. Sjá fylgiskjal og einnig heimasíðu FFGÍ.
2. Skýrsla gjaldkera
Gjaldkeri flutti skýrslu vegna greiðslna inn og út úr Foreldrafélaginu. Sjá fylgiskjal.
3. Önnur mál
- Spurt var um skólalóðarmál. Í framhaldinu komu fram upplýsingar um nýja hreystibraut sem setja á upp.
- Spurt var um aðgang og stjórnun á Facebook-síðu Foreldrafélagsins.
- Rætt var um skólabókasafnið og fyrirhugaða bókasöfnun Foreldrafélagsins.
- Foreldrafélagsstjórn voru þökkuð vel unnin störf.
- Rætt var um vöntun á bekkjarfulltrúum.
Fleira var ekki fyrir tekið og fundarstjóri sleit fundi kl. 20:00, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.
Í framhaldi af aðalfundi var Margrét Pála með erindi um börn, skólagöngu og foreldra.








