Aðalfundur Foreldrafélags G.Í.

02.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði verður haldinn í kvöld, í sal skólans kl. 20:30. Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf, en auk þeirra verður Svavar Þór Guðmundsson með áhugavert erindi um netsamskiptamiðla barna og unglinga.


Boðið verður upp á kaffi og konfekt og eru allir foreldrar hvattir til að mæta.