Áætlun í íslensku og stærðfræði

07.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudaginn ætlum við að fara af stað með áætlunargerð í íslensku og stærðfræði, eins og kynnt var í foreldraviðtölum. Við setjum okkur lágmarksviðmið sem allir eiga að ráða við, þannig að allir vinna á sínum hraða. Markmiðin með þessari breytingu eru að nemendur auki sjálfstæði, metnað og ábyrgð á námi sínu og hafi meiri áhrif á framvindu eigin náms.