Á íslensku má alltaf finna svar

05.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nemendur eiga að læra þetta ljóð utanað, þau taka svo könnun í næstu viku.


 


Á íslensku má alltaf finna svar


Ljóð: Þórarinn Eldjárn


Lag: Atli Heimir Sveinsson


 


Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var,
og hún á orð sem geyma gleði´og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.


 


Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú,
það gerir enginn – nema ég og þú.