Á flekamótum

23.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Laugardaginn 26. október standa DKG konur á norðanverðum Vestfjörðum fyrir ráðstefnu um skil milli hinna ólíku viðfangsefna sem manneskjan vinnur að á ævi sinni. Ráðstefnan sem verður haldin í Háskólasetri Vestfjarða er öllum opin og eru þátttakendur beðnir um að skrá sig á netfangið jonabene@gmail.com


 


Dagskrá ráðstefnunnar verður sem hér segir:


10:15 – 10:30 Skráning þátttakenda


10:30 – 10:40 Setning og tónlistaratriði


10:40 – 11:10 Jóhanna Einarsdóttir, prófessor í menntunarfræðum ungra barna;  Úr leikskóla í grunnskjóla: Sjónarmið barna


11:10 – 11:40   Kolbrún Pálsdóttir, doktor í menntunarfræðum; S kil milli frístundaheimila og skóla


11:40 – 12:10 Gerður G. Óskarsdóttir, doktor í menntunarfræðum;  Úr grunnskóla í framhaldsskóla. „Flekaskil, flekamót eða sniðgeng flekamörk“.


12:10 – 12:40 Hádegishlé, léttur hádegisverður í boði.


12:40 – 13:10 Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, menntunarfræðingur og framkvæmdastjóri   Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins;  Skil milli framhaldsskóla og framhaldsfræðslu


13:10 – 13:40 Guðrún Geirsdóttir, dósent við Háskóla Íslands f jallar um skilin milli framhaldsskóla og háskóla


13:40 – 14:10 Sr. Bernharður Guðmundsson, fyrrverandi rektor í Skálholti;  Starfslok – lán eða ólán, nema hvortveggja sé!


14:10 – 14:50 Fyrirspurnir og umræður


14:55             Ráðstefnuslit