9. - 13. febrúar 2015
06.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið lesbók bls. 84-89, Málrækt 1, 3 bls., stafsetning, ritun og hljóðlestur.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók, horn bls. 4-9 Mælingar, ásamt æfingahefti.
Samfélagsfræði: Ísland - veröld til að njóta, vinnubók bls. 16-55.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó bls. 12 – 14.
Enska: Days, Months and Seasons.
Lífsleikni: Skyndihjálp og samskipti.
Tilkynningar:
- Á mánudag fá nemendur vitnisburði haustannar með sér heim og verða þeir m.a. til umræðu í foreldraviðtölunum á miðvikudag.
- Foreldradagur er miðvikudaginn 11. febrúar og eru vonandi allir búnir að bóka viðtöl á www.mentor.is.
- Við erum nú að klára Stiku 1a í stærðfræðinni, þar sem við höfum fengist við rúmfræði. Sumir eru alveg búnir að gera kaflanum skil, en aðrir munu klára nú í vikunni. Við tekur næsta bók sem er 1b og hefjumst við handa við mælingar.
- Nú er komið að skiptum í hringekju enn einu sinni og fara nemendur í nýja hópa á mánudaginn. – Sjá nánar hér á síðunni undir flipanum hringekja 5.AH.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








