9.-13. mars
06.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
9.-13. mars 2015
- Í stað hljóðlesturs á morgnana erum við byrjuð með lestrarvini, þá eru tveir saman með sömu bók og lesa upphátt hver fyrir annan. Þetta gekk mjög vel þessa viku og gaman að sjá alla virka og áhugasama J
- Við erum að setja sama atriði fyrir árshátíðina og fljótlega koma krakkarnir með söngtexta ofl. sem gott er að æfa heima.
- Við tökum 5. og næst síðasta hraðlestrarpróf vetrarins í vikunni.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Við vinnum með bókina Komdu og skoðaðu líkamann- melting og heili. Við vinnum með lestur, lesskilning, orðaforða, skrift og vinnum ýmis verkefni. Í gagnvirka lestrinum æfum við okkur sem Spæjarar en spæjarinn leitar að orðum sem þarf að útskýra nánar.
Stærðfræði: Upprifjun á samlagninu og frádrætti, tölur upp í 100 og uppsett dæmi (ljósrit). Æfingahefti; Klára óunnið og Í undirdjúpum.
Náttúrufræði: Tilraunir; vatn og spenna J
Tónmennt: S amsöngur og Ég er furðuverk.
Lífsleikni: Árshátíðarundirbúningur.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, dans, tæknimennt og
textílmennt.
Heimavinna
- Lesa a.m.k. 5 sinnum í viku eða oftar J
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín








