8. - 12. desember

05.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


8.-12. desember


 



  • Nú förum við að „jólast“ á fullu og skreyta í kringum okkurLaughing

  • Á fimmtudaginn ætlum við að gera okkur glaðan dag og hafa bekkjarskemmtun. Þá má koma í náttfötum / kósýgalla og eitt dót sem kemst í töskuna, einnig má koma með smá nammi eða snakk eða popp og fernudrykk Kiss

  • Á föstudag ætlar vinabekkurinn okkar 9. bekkur að bjóða okkur í heimsókn, við munum jólast saman  og þau ætla að  bjóða okkur upp á piparkökur í nestistímanum Smile

  • Fram að jólum er í boði að koma með tússliti, jóla-límmiða, glimmmer og þess háttar.Wink

  • Mikilvægasta verkfærið í skólanum er blýantur og slæmt ef hann er ekki í pennaveskinu………… og strokleður Cool


 


Viðfangsefni vikunnar er m.a.


 


Íslenska:                  Unnið með bókina Þegar Trölli stal jólunum eftir Dr. Seuss. Markmið vikunnar er að nemendur auki orðaforða sinn, lestur, lesskilning, samsett orð, samheiti orða og kynnist upplestri á bundnu máli.


Stærðfræði:                    Jólastærðfræði, ásamt æfingahefti og aukabókum.


Tónmennt:              Jólalög og samsöngur.


Lífsleikni/Kristinfræði: Regnboginn; jólin og aðventustund.               


 


 


 


 


 


Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og textílmennt.



Heimavinna


-       Lestur daglega.


Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


 


Kveðja,


Kristín og Ingibjörg