7. – 11. október 2013

07.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú hefur íslenskan og stærðfræðin fengið á sig annan brag. Við vinnum samkvæmt Byrjendalæsinu í ísl. en hver og einn vinnur í stærðfræðinni í eigin bók.



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:




Í náttúrufræði verður unnið með dýr í vetrarham, veðurathuganir og þurrkun blóma.




Í samfélagsfræðinni verður fjallað áfram um mannkynssöguna og örlítið um
umferðina.Mannkynssagan verður á áætlun í nokkurn tíma.




Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.




Í íslensku förum við í byrjendalæsi, stöðvavinnu og byrjum á að koma okkur upp
bekkjarreglum.




Í ensku verður unnið út frá orðaforða um dýr, samþætt upplýsingatækni.




Í myndmennt hefur annar hópurinn verið að teikna myndir úr ævintýrum og líma á striga á
blindramma. Hinn hópurinn hefur gert pappír og málað svo á hann blautan.
Þessari vinnu lýkur í vikunni og þá verður farið í að stimpla/mála myndir með
ávöxtum og grænmeti.




Svo fara nemendur líka í hringekju, tónmennt, íþróttir, sund, dans og útiveru.


Gott væri að heyra frá ykkur foreldrum í sambandi við vikuáætlunina, hvar best er að skoða
hana. Okkur þykir mentor.is góð leið en ef fleiri vilja að við setjum hana upp
í þessu formi eins og núna og á  grisa.isafjordur.is þá gerum við það. En við
þurfum að heyra frá fleiri foreldrum.



Kveðjur                                 

Árný og Laufey