7. - 11. október
04.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Minnsta málið lesbók bls. 34-39, vinnubók 28-29. Völusteinn bls. 10-17.
Stærðfræði: Stika 3a bls. 36-63, tölfræði og líkur.
Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 21-29, Varmi.
Samfélagsfræði: Miðaldafólk á ferð bls. 6-15, gerð stutt ritgerð um Guðríði Þorbjarnardóttur sem unnin verður í upplýsingatæknitímum.
Danska: Talað mál og orðaforði.
Enska: Action 1 bls. 90-95 og vinnubók bls. 16-23.
Upplýsingatækni: Ritgerð um Guðríði Þorbjarnardóttur, samþætt við samfélagsfræðina.
Lífsleikni: Bekkjarfundur, hlutverkin okkar út frá uppbyggingarstefnunni.
Tilkynningar:
- Við minnum á innileikfimina á fimmtudögum og viðeigandi íþróttaföt.
- Ef fleiri vilja auka heimavinnu, þá er það sjálfsagt mál. Þeir hinir sömu senda okkur þá línu í tölvupósti.
- Nú höfum við endanlega frestað fjallgöngu fram á vor og vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir þá
Heimanám
Lesa heima í a.m.k. 15 mínútur á dag og skrifa í viðeigandi stílabók (heima eða í skóla).
Ljúka skólaverkefnum ef einhver eru.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








