7. - 11. apríl 2014

04.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nemendur leika árshátíðaratriðið sitt fyrir leikskólabörn og unglingastig á mánudag.


 


Á föstudag verður bekkjarskemmtun eftir hádegishlé.


Nemendur mega koma með smá nammi og drykk ef þeir vilja.


 


Þetta er síðasta kennsluvikan fyrir páskafrí.


Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 22. apríl samkvæmt stundaskrá.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Í náttúrufræði byrjum við á bókinni Lífríki í fersku vatni.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.


 


Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B og flestir nemendur hafa tekið prófið á bls. 66. Við gerum ráð fyrir að flestir ljúki bls. 80 í vikunni..


 


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Málrækt verður notuð. Einnig vinnum við í Sögusteini.


 


Enskan fjallar um árstíðirnar og páskahefðir í Englandi.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt  og útiveru.



 


Kveðjur,


 


Árný og Laufey