6. - 10. október
03.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið, lesbók 1 bls. 24-27 Svarti hænuunginn, ásamt vinnubók bls. 24-27, orðabók, ritun, orðaforði. Hljóðlestur.
Stærðfræði: Stika 1a – Nemendabók bls. 28-32, samlagning og frádráttur, ásamt ítarefni úr æfingahefti.
Samfélagsfræði: Ísland, veröld til að njóta – lesbók bls. 24-29 náttúruvernd og auðlindir ásamt vinnubók bls. 14-15.
Náttúrufræði: Auðvitað 1 bls. 24-29, kraftar.
Enska: Speak out bls. 8-9 og Work out bls. 14-16.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – þarfir okkar og hlutverk.
Upplýsingatækni: Forritun – Alice. Þeir sem vilja æfa sig heima og leika sér í forritinu geta sótt það inn á www.alice.org og erum við að nota útgáfu 2.4.
Tilkynningar:
- Nú eru flest allir komnir í áætlun í íslensku og stærðfræði. Við setjum fram eitthvað lágmark, sem allir geta klárað og svo bæta nemendur við sjálfir eftir getu hvers og eins. Þetta snýst ekki um að komast sem lengst, heldur að nýta tímann vel og bæta við sig þekkingu.
Ef nemendur ná ekki lágmarki vikunnar, þá taka þeir óunnið með sér heim á föstudögum og koma með það fullunnið á mánudegi, til að hefja vikuna alltaf með hreint borð J - Þetta er síðasta vikan í hringekjuhópum og verða skipti mánudaginn 13.október. Nánar skilgreint á næstu vikuáætlun.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








