6.HS stóð sig vel í Lífshlaupinu

22.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir í 6. HS stóðu sig aldeilis vel í Lífshlaupinu og skráðu samviskusamlega daglega hreyfingu. Fyrir hvern dag lengdist ormurinn sem við útbjuggum og hlykkjaðist hann um ganginn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


Bekkurinn var stigahæsti bekkur skólans, með samtals með 13.620 mínútur í skráða hreyfingu, eða 681 mínútu á hvern nemanda. Þess má til gamans geta að sá skóli sem sigraði í keppninni, þ.e. Flataskóli, var með 610 mínútur á hvern nemanda, þannig að 6.HS hefði sigrað keppnina hefði hann keppt einn og sér!