5. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012

14.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

5. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012 fimmtudaginn 26. apríl 2012 kl. 18:00.


 


Mættir:


Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, Thelma Hjaltadóttir og Þórdís Lilja Jensdóttir.


 


1. Skólalóðarmál


Lóðarmál GÍ eru enn í sömu stöðu og fyrr í vetur og ekkert hefur heyrst frá Ísafjarðarbæ síðan bréf frá Foreldrafélagi GÍ var sent bæjarráði í haust.  Ákveðið að halda málinu vakandi og ef og þegar Kaupfélagshúsið verður selt að ítreka bréfið til bæjarráðs.  Jafnframt rætt að fulltrúar í skólaráði veki athygli á málinu í skólaráðinu.


 


2.  Bókakostur skólabókasafns


Stjórn Foreldrafélags GÍ hrinti af stað, í samvinnu við Eymundsson, átaki til að auka bókakost skólabókasafns GÍ.  Fólk getur keypt bækur í Eymundsson sem bókabúðin kemur svo til bókasafnsins.  Ef margar bækur af sömu tegund munu koma mun bókabúðin skipta út bókum.


 


3.  Fundur með bekkjarfulltrúum og skólastjórnendum


Ákveðið að boða mjög fljótlega fund með bekkjarfulltrúum og skólastjórnendum til að ræða skólamál.  Ákveðið að boða bekkjarfulltrúa og starfsfólk GÍ; Olgu skólastjóra, Jónu aðstoðarskólastjóra, Höllu deildarstjóra, Rannveit sérkennslustjóra, Berglindi sérkennara og fulltrúa í skólaráði.  Mánudagurinn 14. maí kl. 18:00 hugsanlegur fundartími.


 


4.  Vorhátíð


Á að' halda vorhátíð?  Ákveðið að halda ekki vohátíð heldur stefnt að því að kalla foreldra saman ef framkvæmdir verði við skólalóð og vilji er fyrir því.


 


5.  Innheimta Foreldrafélags GÍ - árgjald


Þórdís sér um að innheimta félagsgjöld í Foreldrafélagið, 1.500 kr. frá hverju heimili (sama upphæð og í fyrra).  Reikningur kemur til heimila í gegnum heimabanka.


 


Fundi slitið kl. 20:00, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.