5. – 9. maí 2014

02.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Frá og með mánudeginum 5. maí hefst útileikfimi og nemendur þurfa að vera klæddir eftir veðri.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Í náttúrufræði vinnum við í Byrjendalæsi, samþætt íslensku.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.


 


Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B. Við gerum ráð fyrir að flestir ljúki bls. 98 í vikunni.


 


Í íslensku höldum við áfram í lestrarátaki sem nefnist PALS, það er paralestur, þar sem við lesum,  æfum okkur í að spá fyrir framhald í því sem við erum að lesa og æfum lesskilning. Þetta átak verður fram að skólalokum. Við verðum líka í Byrjendalæsisverkefni og lesum sögu úr fjörunni og vinnum verkefni úr henni. Að auki verður skrift.


 


Enskan fjallar um árstíðirnar og svo rifjum við upp það sem við höfum lært í vetur.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt  og útiveru.


 



Kveðjur,


 


Árný og Laufey