5. - 9. mars 2012
02.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið, lesbók 2 bls. 7-9, Farið á veiðar, Yfir fljótið og tvær mæður. Vinnubók 2 bls. 18-26 málfræði.
Stærðfræði: Stika 1a nemendabók, Rúmfræði bls. 110-117 - flutningar.
Samfélagsfr.: Land og líf.
Náttúrufræði: Auðvitað 1, - Jörðin og landið okkar, stjörnur.
Enska: Unnið í Work out og Speak out
Tónmennt: Blásturshljóðfæri – samstarfsverkefni G.Í. og Tónlistarskóla Ísafjarðar
Upplýsinga-
Tölvur: Ritun í Microsoft Word – samþætt við íslenskuna.
tækni.:
Skólasafn: Verkefni við réttritunarorðabók o.fl.
Tilkynningar:
- Mánudaginn 5. mars ætlum við að hefja daginn með lestrarstund, þannig að allir, bæði börn og fullorðnir, taki sér bók í hönd og lesi í u.þ.b. 40 mínútur.
- Á þriðjudaginn verður náttúrfræðiprófið sem frestað var í síðustu viku. Nemendur eiga að lesa í Auðvitað, bls. 32 – 51, kaflann sól, jörð og tungl. Skila á vinnubókinni á þriðjudaginn en ekki er leyfilegt að nota hana í prófinu.
- Á miðvikudaginn er stefnt að skíða- og útivistardegi hjá 5.-10.bekk í Tungudal frá kl. 9:00 – 13:00 ef veður leyfir. Nemendum er frjálst að vera á skíðum, brettum, snjóþotum, sleðum, gera snjókarla eða hvað sem er. Þeir sem fara í lyftur eiga að sjálfsögðu að vera með hjálma. Nánari upplýsingar verða sendar heim eftir helgi.
- Í síðustu viku frestuðum við heimsókn í snjóflóðasetur Veðurstofunnar vegna mikilla veikinda í árganginum, en hyggjum á heimsókn í þessari viku.
- Vel hefur gengið með samstarfsverkefni skólans og Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Nokkrir nemendur hafa þó haft á orði að þeir vilji hætta og viljum við fá staðfestingu frá foreldrum ef þeir vilja ekki nýta sér þetta boð áfram.
|
Heimanám:
íslenska: vinnublað – samsett orð og stafrófsröð. stærðfræði: Merkúríus bls. 7.
Nemendur fá heimanámið heim á föstudögum og eiga að skila því |
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








