5. - 9. mars

01.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur


5. – 9. mars


 


Mánudaginn 5. mars verður lestrardagurinn mikli í GÍ.  Þá ætla allir í skólanum að lesa frjálst í fyrsta tíma bæði nemendur og starfsfólk. 


Sleðaferð.  Miðvikudaginn 7. mars  verður skíða- og útivistadagur hjá 5. – 10. bekk.  Við í 3. bekk ætlum líka að hafa útvistadag og fara í brekkurnar við Torfnes með sleða og snjóþotur og skemmta okkur í snjónum eftir hádegismatinn og því mega allir koma með sleðana sína og snjóþotur í skólann.  (vonum bara að það verði nægur snjór).


 


Við erum að læra um himingeiminn í náttúrfræði og langar mig að benda ykkur skemmtilegan vef á íslensku um stjörnufræði, þar má finna ýmislegt fróðlegt um himingeiminn. Slóðin er: http://www.stjornufraedi.is/     Krakkarnir voru alveg heilluð þegar við kíktum á hann.  


Orð vikunnar: stundarkorn, fjær og skvaldur.


 


Verkefni vikunnar: 


 


Íslenska:  Ritrún 3 bls. 23 – 24, vinna með orð vikunnar, sögugerð, lestur og lesskilningur.


Stærðfræði:   Sproti 3B bls. 44 – 53  námundun og rúmfræði.


Samfélagsfræði:   Í sveitinni með Æsu og Gauta, sauðkindin.


Náttúrufræði:  Komdu og skoðaðu himingeiminn bls. 14 -15.


Tónmennt:    Söngur dýranna í Týról og Reikistjörnurnar hringsnúast


Lífsleikni:   uppbyggingarstefnan


  Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.


 


 


 


Heimavinna  


Námundunarblöð


Málið mitt   Skv. stimpli(má gera meira)  


Lestur daglega.


Fimmorðabók  a.m.k. þrisvar í viku.


 


Kær kveðja,  Helga