5. - 9. desember 2011

02.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Við þökkum þeim foreldrum fyrir komuna sem sáu sér fært að mæta á opinn dag 1.desember.



Íslenska:       Bókmenntir og lesskilningur: Þetta er málið lesbók bls. 54-60, Ég vitja þín æska. Vinnubók bls. 50-53, málfræði. Skrift og lestur.



Stærðfræði:   Stika 1a nemendabók Tugabrot, bls. 72-77 ásamt æfingahefti.



Samfélagsfr.:   Skila á korti af Suðvesturlandi á mánudag.  Trúarbragðafræði – Brauð lífsins, aðventan.



Náttúrufræði: Auðvitað 1, - Sól, jörð og tungl bls. 35-41.



  Enska:          Unnið í Work out og „speak out“  



Tónmennt:       Sungin jólalög.



Upplýsinga-     Tölvur: Jólavefir skoðaðir
tækni.:
           Skólasafn: Verkefni við réttritunarorðabók.



 


  Tilkynningar:





  • Nú á aðventunni reynum við að gíra okkur aðeins niður, eiga notalegar stundir í svartasta skammdeginu. Við syngjum jólalög á hverjum degi og mega krakkarnir gjarnan koma með jóladiska (vel merkta) ef þeir vilja.


  • Enn vantar okkur fernur fyrir jólaföndrið, pakkaborða og auglýsingabæklinga


  • Gott er að fara yfir pennaveskin og gæta þess að allt sé til staðar fyrir jólaföndrið s.s. lím, litir o.s.frv. Þeir sem vilja mega líka koma með glimmer og slíkt.


  • Margir eru að verða búnir með reiknisheftin sín og þurfa að kaupa ný sem allra fyrst (miðstærð af rúðum). Spyrjið endilega ykkar börn hvernig staðan er hjá þeim.


  • Við setjum stærðfræðina þannig upp að blaðsíðurnar í nemendabókinni er algjör lágmarksvinna á viku. Þeir sem ekki ná því, verða að taka bókina heim á föstudegi og klára upp yfir helgina. Æfingaheftið er nokkurs konar ítarefni fyrir þá sem komast yfir það.




Bestu kveðjur,



Auður og Helga.