3. – 7. mars 2014

28.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mikið var þetta flott lestrarveisla!


Takk fyrir góða mætingu og flottar veitingar.


 


Á mánudaginn 3. mars (bolludag) mæta allir í grímubúningi í skólann.


Það verður grímuball hjá 4. og 5. bekk kl. 10:20-11:00. Vopn eru bönnuð.


 


Þriðjudaginn 4. mars er starfsdagur kennara.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Í náttúrufræði ljúkum við bókinni  um hafið. Við tökum svo aftur bókina Náttúran allan ársins hring og ætlum að taka mynd af ákveðnum stað í náttúrunni til að fylgjast með vorinu koma.


 


Í samfélagsfræðinni förum við í Komdu og skoðaðu þjóðhætti, þar sem við skoðum íslenskar venjur og siði úr gamla tímanum og hvernig þær hafa haft áhrif á tungumálið og allt líf  okkar enn í dag.


 


Í stærðfræði vinnum við niður bls. 55  í Sprota 4B. Á miðvikudag verður könnun úr margföldun og deilingu. Síðan vindum við okkur í næsta kafla sem er um mælingar.


 


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Sögusteinn notuð í verkefni og lestur.  Við leggjum áherslu á ritun og verðum með æfingar í skapandi skrift.


 


Í ensku verður unnið með bókina Amazing animals og orðaforða um vorið. Upplýsingatækni verður samþætt ensku.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, dans, myndmennt, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.


 


Kveðjur,


 


Árný og Laufey