3. – 7. feb. 2014
31.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á fimmtudag verða foreldrafundir. Nokkrir eiga eftir að bóka sér tíma. Hafið endilega samband ef þið lendið í vandræðum.
Na stronie Mentor.is zostaly otwarte zapisy na wywiadowke. Spotkania zalozone sa na Laufey ale zostana rozdzielone pomiedzy nauczycielkami. Prosimy o kontakt wrazie problemu z zapisem.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði höldum við áfram að læra um hafið.
Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram verkefni um lifnaðarhætti í Afríku og byrjum á að skoða húsakost þar.
Í stærðfræði vinnum við bls. 10-18 í Sprota B, sem er ummál og flatarmál. Það verður könnun úr þessum kafla á föstudag.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ýmis verkefni unnin samkv. Byrjendalæsi. Við leggjum áherslu á reiði og reiðistjórnun í þessari viku og gerum verkefni í því sambandi. Við munum áfram leggja áherslu á ljóðalestur og æfa upplestur ljóða.
Upplýsingatækni verður samþætt ensku og náttúrufræði.
Í ensku tökum við orðaforða um dýr í köldum löndum.
Svo fara nemendur líka í hringekju, myndmennt, dans, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








