31. mars – 4. apríl 2014

28.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Árshátíð verður 3. og 4. apríl.


 


Árshátíðarundirbúningur er núna í fullum gangi og talsverð spenna í hópnum. Við þurfum að biðja ykkur foreldra um að athuga með búninga og sjá hvað er til á heimilinu fyrir hlutverk barnsins ykkar. Þau vita hvað þau eiga að leika og sum eru úr fortíðinni, sum nútíðinni og nokkur eru framtíðarbörn. Við skoðum líka búningageymsluna hér og þegar við leggjum öll saman gengur þetta örugglega vel.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Árshátíðarundirbúningur verður í forgrunni.


 


Í náttúrufræði vonumst til að ljúkum við við bókina  Náttúran allan ársins hring.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við í Komdu og skoðaðu þjóðhætti. Við verðum í all nokkurn tíma með þessa bók.


 


Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B og nemendur taka próf þegar þeir hafa náð blaðsíðunni þar sem prófið er (66). Síðan halda þeir áfram í bókinni.


 


Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og bókin Málrækt verður notuð.


 


Enskan fellur út vegna árshátíðar.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, myndmennt  og útiveru.


 



Kveðjur,


 


Árný og Laufey