30. september – 4. október 2013
27.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú eru samræmdu prófin afstaðin og kennslan fær á sig annað form.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði verður unnið með forðanæringu plantna, umpottun, veðurathuganir og þurrkun blóma.
Í samfélagsfræðinni verður fjallað um mannkynssöguna og örlítið um umferðina.
Í stærðfræði byrjum við að vinna í Sprota á einstaklingsgrundvelli.
Í íslensku förum við í byrjendalæsi, stöðvavinnu og vinnu varðandi hlutverk nemenda og kennara í skólanum.
Í ensku verður unnið út frá orðaforða um líkamann, samþætt upplýsingatækni.
Svo fara nemendur líka í hringekju, myndmennt, tónmennt, íþróttir, sund, dans og útiveru.
Örfáir hafa sent okkur póst varðandi birtingarform vikuáætlunarinnar. Við setjum hana því inn á bekkjarsíðuna á grisa.isafjordur.is að þessu sinni og sendum hana heim í viðhengi.
Muna að lesa heima á hverjum degi. |
Kveðjur
Árný og Laufey








