3.-7.nóvember
31.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
3.-7. nóvember
- Við biðjum ykkur um að athuga með skriffærin hjá krökkunum. Mikið hefur verið um það að blýantur, strokleður og yddari sé ekki til staðar og þá fer mikill tími í snúninga og vesen.
- Miðvikudaginn 5. Nóvember kl. 9:10 verður Rýmingaræfing, gott að vita ef einhverjir geta orðið hræddir.
- Fösstudaginn 7. Nóv. Ætlum við að hafa dótadag, þá má koma með eitt dót að heiman sem kemst fyrir í töskunni J
- Minni á foreldraviðtölin sem verða miðvikudaginn 12. nóv.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Unnið með bókina Má ég vera memm? eftir Hörpu Lúthersdóttur. Markmið vikunnar er að nemendur auki orðaforða um tilfinningar, átti sig á stórum staf og punkti í setningu, skrifi dótasögu, þjálfist í að leysa úr vandræðum með því að fjalla um frímínútur, einelti og klípusögur.
Stærðfræði: Sproti 2a, Æfingahefti; Kafli 10. Reikningur með tölum upp í 100. Við stefndum niður bls. 47 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.
Tónmennt: Samsöngur og ýmis lög.
Lífsleikni: Þarfirnar (umhyggja, öryggi,frelsi), frímínútur.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og upplýsingatækni.
Heimavinna
- Lestur daglega.
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








