2. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ veturinn 2012-2013
25.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

2. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 11. september 2012
Mættir:
Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, Thelma Hjaltadóttir og Þórdís Lilja Jensdóttir.
Gestur á fundinum: Gautur Ívar Halldórsson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Djúpið.
1. Fundur með Olgu skólastjóra og fleiri skólastjórnendum
Stungið upp á þriðjudeginum 18. september kl. 16:00.
2. Gestur á fundinum - Gautur Ívar Halldórsson
Gautur Ívar á nú einn mánuð eftir af síinum ráðningarsamningi. Spjallað um málefni Félagsmiðstöðvarinnar Djúpið. Ákveðið að gefa Félagsmiðstöðinni útsláttarrofa fyrir hljóðkerfi. Thelma og Gautur verða í sambandi.
3. Umræðuefni á fundi með skólastjórnendum
Rætt um hugsanleg umræðuefni á fundi með skólastjórnendum í næstu viku.
4. Afmælisráðstefna Heimilis og skóla
Afmælisráðstefna Heimilis og skóla verður n.k. mánudag 17. september. Erfiður tími til að mæta á. Birna hugsar málið.
5. Aðalfundur
Martha Lilja reynir enn á ný að ná í Margréti Pálu. Húgo Þórisson kemur um leið og hægt er.
Fundi slitið kl. 17:30, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.








