2. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012
29.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

2. fundur stjórnar Foreldrafélags GÍ 2011-2012 mánudaginn 28. nóvember 2011 kl. 18:00
Mættir:
Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Marthensdóttir Olsen og Þórdís Lilja Jensdóttir.
Gestir:
Jóna Benediktsdóttir, aðstoðarskólastjóri GÍ og Margrét Halldórsdóttir, forstöðumaður Skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar.
1. Peningagjöf
Þórdís afhenti 100.000 kr. á kennarafundi GÍ í dag, 28. 11. 2011. Gjöfinni var vel fagnað.
2. Skólalóð Grunnskólans á Ísafirði
Margrét Halldórsdóttir kynnti gamla teikningu af skólalóðinni og ýmsar umræður sköpuðust um lóðamálin. Með sölu á gamla Kaupfélagshúsinu er ljóst að skólalóð yngri barna muni minnka til muna og hvaða leiðir eru færar í framhaldi af því? Ákveðið að Foreldrafélagið sendi bréf til bæjarráðs varðandi lóðamálin þar sem áréttað yrði:
a) Áhyggjur foreldra.
b) Kallað eftir betrumbótum vegna sölu á hluta skólalóðar.
c) Nauðsynlegt að gera ráð fyrir fjármálum tilframkvæmda.
d) Nauðsynlegt að vera tilbúið næsta sumar 2012, fyrir næsta skólaár.
e) Foreldrafélagið tilbúið að leggja fram pening og sjálfboðaliðavinnu.
f) Falast eftir samráði um skipulagningu skólalóðar.
g) Að baki Foreldrafélaginu standa 280 heimili.
Teikning geymd í fundargerðarbók.
3. Foreldrafærninámskeið
Jóna Benediktsdóttir kynnti foreldrafærninámskeið. Draumurinn að bjóða upp á fjögurra kvölda námskeið fyrir foreldra barna í 1. bekk, tengd uppbyggingarstefnu og ýmsu öðru. Námskeiðinu fylgir bók sem kostar 750 kr. p/mann. Spurning hvernig er hægt að fá fólk til að mæta. Jóna vill bjóða upp á slíkt námskeið, fyrir foreldra barna í 1.-7. bekk, í mars. Spurning hvernig Foreldrafélagið getur komið að þessu? T.d. með því að styðja við foreldrafærninámskeiðin með því að bjóða foreldrum bækurnar frítt og e.t.v. veitingar. Ákveiðið að Foreldrafélagið styðji við foreldrafærninámskeið með kaupum á bókum og kaupi veitingarnar, sem og standi að auglýsingum fyrir námskeiðið.
4. Hegðun og framkoma
Jóna Benediktsdóttir ræddi almennt um hegðun og framkomu. Niðurstaða umræðanna að skólinn myndi hafa forgöngu um að kalla saman aðila sem málið varðar (t.d. HSV, VáVest o.fl.).
5. Önnur mál.
a) Umræður um skólaráð.
b) Næsti fundur boðaður í janúar.
Fundi slitið kl. 19:20, Heiðrún Tryggvadóttir fundarritari.
Viðhengi:
a) Frétt BB um bréf frá Foreldrafélaginu til bæjarráðs vegna skólalóðarmála GÍ.
b) Bréf frá Foreldrafélaginu til bæjarráðs vegna skólalóðarmála GÍ:
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1
400 Ísafirði
Efni: Skólalóð Grunnskólans á Ísafirði
Stjórn Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu mála við skólalóð Grunnskólans á Ísafirði.
Skólalóðamálum Grunnskólans á Ísafirði hefur um margt verið ábótavant undanfarin ár. Ekki batnar ástandið við sölu á Kaupfélagshúsinu svokallaða sem þýðir minni skólalóð fyrir yngri börnin auk þess sem setja má spurningamerki við hversu vel fer saman, skólalóð (þó afgirt sé) og bílastæði. Stjórn Foreldrafélagsins telur því nauðsynlegt að farið verði í skipulagsvinnu fyrir skólalóðina og myndi gjarnan vilja koma að þeirri vinnu með þar til bærum aðilum. Í framhaldi af þeirri skipulagsvinnu er nauðsynlegt að ráðast í framkvæmdir við skólalóðina, framkvæmdir sem fram færu næsta sumar og yrði lokið fyrir upphaf næsta skólaárs, 2012.
Ljóst má vera að framkvæmdir við skólalóð munu kosta peninga og fer stjórn Foreldrafélagsins fram á að við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir Ísafjarðarbæ fyrir árið 2012 verði gert ráð fyrir fjármunum í þessar framkvæmdir. Foreldrafélagið er reiðubúið að leggja til umtalsverða fjárupphæð til verksins ásamt sjálfboðavinnu, sjái bæjaryfirvöld flöt á slíku samstarfi. Stjórn Foreldrafélagsins gerir sér grein fyrir því að erindi þetta er mjög seint fram komið þar sem vinna við fjárhagsáætlun er langt komin en stjórnin taldi víst að gert væri ráð fyrir fjármunum til þessa verkefnis, ekki síst í ljósi sölunnar á Kaupfélagshúsinu nýverið. Á stjórnarfundi í gær var athygli okkar vakin á því að svo væri ekki.
Skólinn er vinnustaður barna okkar og þar skiptir skólalóðin miklu máli. Því er afar nauðsynlegt að hún sé þannig útbúin að hún henti börnunum okkar. Skólalóðin er því mikið hagsmunamál barna og foreldra þeirra en að baki Foreldrafélagi Grunnskólans á Ísafirði standa um 280 heimili.
Með von um góðar undirtektir,
_____________________________________________________
Thelma Hjaltadóttir, formaður Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði








