2 – 6. desember 2013

29.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú fer aðventan í hönd og við erum búin að setja upp fína kirkju í stofunni okkar. Gluggar kirkjunnar eru skreyttir af nemendum og í þeim er jólalag fyrir hvern dag aðventunnar svo við syngjum allavega eitt lag á hverjum degi.


 


Á mánudaginn er opinn dagur í skólanum og allir sérstaklega velkomnir að heimsækja okkur, annars eru foreldrar alltaf velkomnir í heimsókn.


 


Hraðlestrarpróf verða í vikunni.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


Í náttúrufræði skoðum við feluliti dýranna og um vetrardvöl plantna. Við höldum áfram að skoða veður og orð tengd veðri.




Áfram verður fjallað  um mannkynssöguna  Núna fjöllum við um Ameríku og byltingar.


 


Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.


 


Í íslensku vinnum við í Sögusteini, skrifum og lesum og förum í stöðvavinnu.


 


Upplýsingatæknin verður samþætt byrjendalæsinu og enskunni.


 


Í ensku rifjum við upp það sem við höfum lært í haust og byrjum á jólaorðum.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, dans,  tónmennt,  íþróttir, sund og útiveru.


 


Lífsleikninni er fléttað inn í mörg fög t.d. íslensku, samfélagsfræði, ensku og tónmennt.


 
Kveðjur,                                 

Árný og Laufey