2. - 6. mars 2015
27.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Læsi til náms – verkefni ásamt vinnubókum. 5. hraðlestrarpróf vetrarins verður lagt fyrir í vikunni.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók, bls. 18-21 Mælingar, ásamt æfingahefti.
Samfélagsfræði: Víkingaöld árin 800-1050 bls. 3-7, Fornleifar. Fjallkonan, hringekja.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó
Enska: Days, Months and Seasons.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan, lýðræði og samskipti.
Tilkynningar:
- Á mánudaginn verður fatasund og koma þá nemendur með aukaföt til að synda í.
- Enn eiga nokkrir nemendur eftir að læra ljóðið Íslands minni (Þið þekkið fold) sem læra átti í síðustu viku.
- Við erum farin að nota iPadinn mjög mikið í alls kyns vinnu og gengur það mjög vel. Nemendur hafa allir aðgang að öllum kennslubókum inni á iPadnum auk þess sem þeir geta skilað okkur ýmsum verkefnum í gegnum smáforritið showbie. Þeir sem eiga iPad heima geta farið inn á forritið þar og sýnt foreldrum bæði verkefnin og bækurnar. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðuna www.showbie.com og skoða verkefnin þar. Best er að fara í gegnum google aðgang nemenda, sem þeir þekkja.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








