2. - 6. júní 2014

30.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudaginn förum við í seinni hjólaferðina okkar (inn í Engidal) og miðum við að leggja af stað frá skóla kl. 8:00. Þeir sem búa inni í firði geta hjólað á móti hópnum. Við óskum eindregið eftir því að fá foreldra með í ferðina. Gott væri að fá skilaboð í tölvupósti um hverjir koma með. Við verðum komin til baka í skólann fyrir matartímann og eftir hádegi verða hringekjutímar. Muna að klæða sig eftir veðri.


 


Þriðjudagur er hefðbundinn skóladagur.


 


Nemendur þurfa tvöfalt nesti báða dagana.


 


Frístund verður ekki þessa viku. Skóladeginum lýkur klukkan 13:00.


 


Miðvikudagur er starfsdagur.


 


Á fimmtudag mæta nemendur í stofuna sína klukkan 10 til að sækja námsmatið sitt. Svo er komið sumarfrí.


 


Við viljum endilega hvetja krakkana til að vera dugleg að les í sumar, því æfingin skapar meistarann.


 


Við þökkum fyrir samstarfið í vetur.


 


Kveðjur,  Árný og Laufey