2. - 6. desember

29.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska:    Minnsta málið lesbók bls. 32-33, Steinn Steinarr og vinnubók 69-74.  Framsögn – lesið ljóð fyrir bekkinn.


Stærðfræði:    Stika 3a bls. 96-128, rúmfræði. Könnun úr bls. 64-95 á þriðjudag.


Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 51-62 Haf, vatnsföll og jöklar .


Samfélagsfræði: Kristinfræði – Upprisan og lífið bls. 33-37, jólin nálgast.


Danska: Start læsebog og opgavebog - orðaforði.


Enska: Lesbók bls. 98-104, vinnubók bls. 24-28.


Upplýsingatækni: Excel – myndrit.


Lífsleikni: Bekkjarfundur.


 


Tilkynningar:



  • Á mánudaginn er opinn dagur og eru foreldrar og aðrir þá sérstaklega velkomnir í heimsókn.

    • 1. desember er dagur íslenskrar tónlistar en þar sem hann ber upp á sunnudag munum við halda upp á hann á mánudaginn. Klukkan 11:15 munu útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis og ætlum við að sameinast við útvarpstækin og syngja saman til heiðurs íslenskri tónlist.

    • Á þriðjudaginn er könnun í stærðfræði úr bls. 64-95, en það er kaflinn um margföldun og deilingu, sem við vorum að klára. Nokkrir hafa nú þegar klárað kaflann og könnunina.

    • Við höldum áfram að æfa upplestur og eiga nemendur að velja sér annað ljóð í þessari viku til æfingar heima og upplesturs í skólanum á miðvikudag.

    • Við minnum á mikilvægi þess að sýna samstöðu í kembingu næstu vikurnar sbr. bréf frá skólahjúkrunarfræðingi, til að uppræta þann vágest sem lúsin er.




 


 


Heimanám



  •   Lesa heima  í a.m.k. 15 mínútur á dag og skrifa í viðeigandi stílabók (heima eða í skóla).

  •   Upplestur á ljóði

  •   Ljúka skólaverkefnum ef einhver eru.


 


 


Bestu kveðjur,


Auður og Helga