29.október - 2. nóvember
25.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Mánudaginn 29.október er vetrarfrí í skólanum.
- Fimmtudag og föstudag 1. og 2.nóv.verða þemadagar í skólanum, þá vinna nemendur í hópum á mismunandi stöðvum. Skóla lýkur þessa daga klukkan 13:00.
- Hringekjuskipti verða í vikunni.
- Vegna þemadaganna höfum við flýtt síðasta skiladegi fyrir „Jól í skókassa“. Kassarnir þurfa að vera tilbúnir þriðjudaginn 30. október. Krakkarnir mega vera saman með kassa og má undirbúa hann heima eða í skólanum. Við útvegum merkimiðana.
- Vegna þemadaga var heimanámið afhent á fimmtudaginn (24.10)og skil miðvikudaginn 31.nóvember.
Íslenska: Frjáls lestur, Völusteinn bls. 30-36;Í dulargervi;leikþáttur
Minnsta málið lesbók 1 bls. 46-49
Stærðfræði: Líkur- ljósritað hefti.
Náttúrufræði: Auðvitað 3,bls. 30-39.
Samfélagsfræði: Miðaldafólk á ferð;Pílagrímar og krossfarar bls. 16-19
Danska: Start.
Enska: Action.
Bestu kveðjur, Erna og Magga








