29.maí - 5.júní 2012
25.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mánudagur 28.maí |
Annar í Hvítasunnu-frí. |
Þriðjudagur 29. maí
|
Leikjadagur, mæting kl. 9:00 í Torfnes. Árgangi skipt í þrjá hópa og farið á milli stöðva. Taka með nesti. Skóla lýkur um hádegi.
|
Miðvikudagur 30. Maí
|
Hjólaferð út í Hnífsdal. Hittast á hjólum kl. 8:30 við Sundhöllina,munið eftir hjálmunum. Þeir sem búa í Hnífsdal hitta okkur við „Steininn“ á Hnífsdalsveginum kl. 9:00. Taka með nesti. Skóla lýkur um hádegi.
|
Fimmtudagur 31. Maí
|
Vorverkadagur-Hjólaferð-Gróðursetning í Tungudal Hittast á hjólum kl. 8:30 við Sundhöllina,munið eftir hjálmunum. Þeir sem búa inni í firði hitta okkur við strætó stoppistöðina við Múlaland. Þeir sem eru í mataráskrift fá nesti, aðrir koma með nesti. Skóla lýkur á milli tólf og eitt. |
Föstudagur 1. júní
|
Frjálsíþróttamót í Torfnesi, mæting kl. 9:00 í Torfnes. Taka með nesti. |
Mánudagur 4. júní
|
Starfsdagur kennara – frí hjá nemendum. |
Þriðjudagur 5. júní
|
Afhending einkunna í stofum bekkjanna kl.10:00. |
Við þökkum fyrir mjög gott samtarf í vetur.
Kveðja. Erna Sigrún og Margrét Björk








