29. sept. - 3. okt.
25.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
29. september -3. október
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Unnið með bókina Pési rófulausi eignast vin eftir Gösta Knutsson. Ýmis vinna samþætt samfélagsfræði, náttúrufræði og lífsleikni þar sem unnið er með vináttu.
Stærðfræði: Sproti 2a, Æfingahefti; 9. Kafli, tvöfalt meira og helmingi minna-sléttar tölur og oddatölur.
Tónmennt: Samsöngur
Lífsleikni: Litahegðun, þarfastjarnan og vinátta.
Einnig förum við í íþróttir, dans, myndmennt og upplýsingatækni.
Heimavinna
----------------------------------Lestur daglega.-------------------------------

- Á mánudag er starfsdagur kennara og því engin kennsla
- Á miðvikudaginn byrjar innileikfimin og þá verða nemendur að koma með; tátyljur, íþróttaföt og handklæði .
- Í vikunni verður fyrsta hraðlestrarpróf vetrarins.
- Á föstudag er alþjóðlegi " Göngum í skólann dagurinn " og fara allir í skólanum í skemmtigöngu um bæinn í því tilefni, rétt fyrir frímínútur.
- Mikilvægt er að athuga hvort barnið sé með dósayddara , blýant og strokleður í pennaveskinu, því það hjáplar til við að stuðla að vinnufrið í bekknum.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








