Vikuáætlun 2.bekkur
29.maí-1.júní
2012
ENGINN SKÓLI MÁNUDAGINN 28. MAÍ - ANNAN Í HVÍTASUNNU.
Athugið að nemendur séu með húfu og vettlinga
þessa útivistardaga í bakpokanum.
- Þriðjudagur:
Hjólaferð; mæting í skóla kl. 8, lagt af stað frá skóla kl. 8:30 (þeir sem búa í Holtahverfinu mega koma kl. 9 að Seljalandi). Koma með NESTI og auka sokka í léttum bakpoka. Við ætlum að grilla pylsur og þeir sem eru ekki í mötuneytinu geta komið með pylsu og pylsubrauð (fá meðlæti hjá okkur).
- Miðvikudagur:
Leikjadagur; nemendur koma með bakpoka, nesti eins og venjulega.Vera klædd eftir veðri.
- Fimmtudagur:
Vorverkadagur; koma með nestið í bakpoka og þeir sem eiga vinnu- eða fingravettlinga komi með þá, því við förum að hreinsa til á sjúkrahústúninu. Nemendur fara heim kl.12:00 og mikilvægt er að vera klædd eftir veðri.
- Föstudagur:
Útivistardagur,umferðarratleikur. Vera klædd eftir veðri. Koma með skólatösku (til að taka heim stílabækur, blöð o.fl. og lestarvasann (skila léttlestrarbókum). Allir koma með tvöfalt nesti (ekki hægt að hita/grilla matinn), ekkert mötuneyti þennan dag.
- Mánudaginn 4. júní er starfsdagur kennara og frí hjá nemendum.
- Þriðjudaginn 5.júní kl. 10:00 er afhending einkunna í bekkjarstofunni okkar.
Nú er þetta síðasta vikuáætlunin á þessu skólaári og viljum við þakka ykkur foreldrum samstarfið á liðnum vetri.
|
Skilið fuglabókinni þriðjudaginn 29. maí
Ekki hætta að lesa heima á hverjum degi
Kveðja Kristín og Ranný