28. október – 1. nóvember 2013

25.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Fimmtudaginn 31. október og föstudaginn 1. nóvember verða þemadagar. Nemendur hafa valið sér
ákveðið þema sem þeir leita upplýsinga um og vinna svo verk til að sýna. Allir
aldurshópar blandast saman. Sýning á verkum nemenda verður á föstudeginum 1.
nóv. kl. 13:00 í anddyrinu í Aðalstræti.


 


4. bekkur vinnur áfram samkvæmt Byrjendalæsinu í íslensku og
Sögusteini. Bókin er lesin og ýmiskonar verkefni unnin úr köflum hennar. Hver
og einn vinnur í stærðfræðinni í eigin bók. Hraðlestrarpróf verður þessa viku.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:




Í náttúrufræði verður farið í sílaleit ef veður
leyfir og unnið með fugla.




Í samfélagsfræðinni verður jafnvel horft á mynd
sem er tengd Ólympíuleikunum. Annars verður fjallað áfram um mannkynssöguna,
við erum að ljúka umfjöllun um Róm.




Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á
einstaklingsgrundvelli.


Í íslensku vinnum við í Sögusteini.




Upplýsingatæknin verður samþætt byrjendalæsinu,
ensku og náttúrufræði.




Svo fara nemendur líka í hringekju,myndmennt, íþróttir,
sund, dans og útiveru.


 


Vinna gegn einelti er alltaf í gangi og við höfum farið yfir eineltisreglur skólans.


Reglurnar eru komar upp á vegg í stofunni okkar.


Við munum auðvitað halda áfram með þá vinnu í allan vetur.




Vinnuáætlunin kemur í tölvupósti og á grisa.is.
Við höldum okkur áfram við þetta fyrirkomulag.


 



Kveðjur                                 

Árný og Laufey