28. nóvember - 2. desember
25.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Opið hús í GÍ á fullveldisdaginn.
1. desember er í næstu viku og þá er orðin hefð í skólanum að allir sem geta mæti í betri fötunum. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru líka boðnir í heimsókn því þennan dag er opið hús hjá okkur.
Í síðustu viku fengum við heimsókn frá Slökkviliði Ísafjarðar í tilefni af Eldvarnarvikunni. Þeir Hermann og Sveinn frá Slökkviliðinu fræddu krakkana um eldvarnir og hvernig þeir eiga að haga sér ef kviknar í. Þeir færðu krökkunum líka 2 bækur og vasaljós að gjöf. Foreldrar eru vinsamlega beðnir að lesa þessar bækur með börnunum sínum og yfirfara það með þeim hvað þið ætlið að gera á ykkar heimili ef kviknar í. Þið megið líka búast við að þau minni ykkur á að yfirfara reykskynjarana og skipta um rafhlöður og kanna hvort slökkvitækin og eldvarnarteppin séu ekki í lagi.
Jólaföndur
Við erum farin að huga að jólaföndri og við viljum athuga hvort það séu til pússluspil heima sem vantar í. Við ætlum að nota kubbana í jólaföndur (endurvinnsla). Börnin mega
líka (ekki nauðsynlegt) koma með tússliti, glimmerlím, notaðan jólapappír, tóma morgunskornpakka, kreppappír og annað föndurefni í skólann.
Verkefni vikunnar:
Íslenska: Ritrún 3 bls. 7, sögugerð og lesskilningur.
Stærðfræði: Sproti 3A, bls. 100 – 105 í nemendabók og æfingahefti bls. 42 – 49(val)
Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu landakort, bls. 18 – 21 Jörðin og hnattlíkön.
Náttúrufræði: Komdu og skoðaðu hringrásir 13 - 14, fæðan.
Kristinfræði: Aðventan og fæðing Jesú.
Tónmennt: Jólalögin.
Lífsleikni: uppbyggingarstefnan
Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.
Heimavinna
Málið mitt 1 bls.
Í undirdjúpunum 1 bls. (þeir sem vilja mega gera meira
)
Læra 3 sinnum töfluna utanbókar.
Lestur daglega.
Fimmorðabók a.m.k. 3x í viku.
3 sinnum taflan :
3 * 1 = 3
3 * 2 =6
3 * 3 = 9
3 * 4 = 12
3 * 5 = 15
3 * 6 = 18
3 * 7 = 21
3 * 8 = 24
3 * 9 = 27
3 * 10 = 30 Kær kveðja, Helga








