28. nóv. - 2. des. 2011
25.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Bókmenntir og lesskilningur: Þetta er málið lesbók bls. 46-51, upprifjun úr fyrri hluta bókar og Karlssonur og kötturinn hans. Vinnubók bls. 46-49, málfræði. Skrift og lestur.
Stærðfræði: Stika 1a nemendabók Tugabrot, bls. 68-71 og æfingahefti bls. 30-36.
Samfélagsfr.: Landshorna á milli, kortavinna - Suðvesturland
Náttúrufræði:
Auðvitað 1, - Sól, jörð og tungl bls. 32 – 34.
Enska:
Unnið í Work out og „speak out“
Tónmennt:
Hljóðfærahópar – horft á myndbandið Sinfónían og hljóðfærin.
Samsöngur.
Upplýsinga-
Tölvur: Útprentun og ljósritun.
tækni.:
Skólasafn: Verkefni við réttritunarorðabók.
Lífsleikni: Hlutverk okkar.
Tilkynningar:
- Nú í upphafi aðventu förum við að huga að jólaföndri. Venja er að 5. bekkur geri kirkju úr fernum og óskum við eftir því að hver og einn nemandi komi með 3 fernur, vel þvegnar og þurrkaðar. Best er að það sé ein ferna 1,5 l. og tvær o,5 l (t.d. AB mjólk, rjómi eða jógúrt). Ef það gengur ekki, þá mega það vera þrjár 1,5 l.
- Gott væri að fá jólalega pakkaborða ef einhverjir eiga. Þeir mega vera af öllum stærðum. Einnig væri gott að fá auglýsingabæklinga úr glanspappír.
- Fimmtudaginn 1. desember er opinn dagur í skólanum. Þann dag eru allir aðstandendur sérstaklega velkomnir í heimsókn.
Þar sem um fullveldisdaginn er að ræða hefur starfsfólk mætt í betri fötunum undanfarin ár – þó ekki spariklætt. Gaman væri að nemendur gerðu slíkt hið sama og settu fínan svip á skólann í tilefni dagsins.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga.








