28. apríl - 2. maí

25.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Á fimmtudag 1. maí, verkalýðsdaginn, verður frí.


Annan maí verður hópmyndataka, nemendur fengu miða heim í dag.


 



Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:


 


Í náttúrufræði höldum við áfram í bókinni Lífríki í fersku vatni.


 


Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.


 


Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B. Við gerum ráð fyrir að flestir ljúki bls. 92 í vikunni.


 


Í íslensku byrjum við í lestrarátaki sem nefnist PALS, það er paralestur, þar sem við lesum,  æfum okkur í að spá fyrir framhald í því sem við erum að lesa og æfum lesskilning. Þetta átak verður fram á skólalok. Við verðum líka í Byrjendalæsisverkefni og lesum sögu úr fjörunni og vinnum verkefni úr henni. Að auki verðu skrift.


 


Enskan fjallar um árstíðirnar og páskahefðir í Englandi.


 


Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt  og útiveru.


Kv. Árný og Laufey