27. febrúar - 2. mars
24.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Vinnubók 2 bls. 18-21 málfræði. Auk þess verður íslenskuþema tengt Vilborgu Dagbjartsdóttur rithöfundi.
Stærðfræði: Stika 1a nemendabók, Rúmfræði bls. 106-109 í nemendabók og bls. 48-53 í æfingahefti.
Samfélagsfr.:
Land og líf.
Náttúrufræði: Auðvitað 1, - Jörðin og landið okkar, stjörnur.
Enska: Unnið í Work out og Speak out
Tónmennt: Blásturshljóðfæri – samstarfsverkefni G.Í. og Tónlistarskóla Ísafjarðar
Upplýsinga-
Tölvur: Ritun í Microsoft Word – samþætt við íslenskuna.
tækni.:
Skólasafn: Verkefni við réttritunarorðabók o.fl.
Tilkynningar:
- Í næstu viku verður íslenskuþema í skólanum tengt rithöfundinum Vilborgu Dagbjartsdóttur. Við munum kynnast höfundinum og gera verkum hennar skil á fjölbreytilegan hátt.
- Í vikunni munum við heimsækja snjóflóðasetur Veðurstofunnar hér á Ísafirði og kynnast starfseminni þar.
- Við minnum aftur á að allir þurfa að hafa gráðuboga til taks í stærðfræðinni.
- Á miðvikudag verður próf í náttúrufræði. Lesa á bls. 32-51 – sól, jörð og tungl. Skila á vinnubókinni á miðvikudag, en ekki er leyfilegt að nota hana í prófinu.
| Heimanám:
íslenska: vinnublað – orðabókin og samhljóðar. stærðfræði: Merkúríus bls. 6. Nemendur fá heimanámið heim á föstudögum og eiga að skila því í síðasta lagi á næsta fimmtudegi. Þeir sem eiga teygjumöppu á lausu heima, mættu gjarnan koma með eina slíka til að halda utan um heimanámið. |
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








